Bjór

Texti: Valgarður Guðjónsson

Það stendur í lögum.
Það stendur hér.
Að þeir eigi að hafa vit fyrir mér.
Þeir slefa út ræðum.
Þeir jarma í kór.
Þeir segja að ég verði slæmur af bjór.

Finnst þeim pillur betri en bjór?
Mér finnst meira en nóg...
Næst klippa þeir glösin mín
svo ég geti ekki drukkið eins stíft.

Finnst þeim þynnir betri en bjór?
Mér finnst komið nóg.
Næst mæla þeir magnið á mann
svo þeir finni strax stimpil á hann.

Það stendur heima.
Nú ætla þeir.
Að gera lítið kjötstykki úr mér.
Þeir slefa út ræðum.
Þeir jarma í kór.
Þeir segja að ég verði slæmur af bjór.

Finnst þeim spíri betri en bjór?
Mér finnst meira en nóg...
Næst gera þeir Ríkið að bar
svo ég verði að hella í mig þar.

Finnst þeim límið betra en bjór?
Mér finnst komið nóg..
Þeir segja að ég hafi vit til að velja þá
en ég hafi ekki vit til þess að hafa vit fyrir mér.

Lög