Barcelona

Texti: Valgarður Guðjónsson

Með bægslum gengu, ruddust í hvert hús, 
að mestu unglingar jafnvel börn með (vél)byssu og kjaft. 
Slóðin morðum drifin, hamslaus um hvert torg, 
til marks um sigur, höfðu stillt upp í nokkur morð. 
Í sjónmáli sigur, lögðu samt í rúst, 
allt sem hefði nýst í næsta skrefi á nýrri öld.

Við óðum… sent til mín, 
hendum ljóðum.. 
Eftir eina leið en  
finnum enga aðra inn

Þið óðuð 
beint til mín, 
höndum góðum 
eftir eina skeið 
en finnið ekkert til.

Loksins innandyra, blasti önnur sýn við þeim 
sem reyndu að koma sér og sínum í skjól. 
Það blasti fljótt við, var nokkuð ljóst, 
að mestu svöng, hrædd, börn sem veikan skjálfandi fót. 
Samt reyndu að bera sig helst til vel, 
héldu áfram hótunum og hótfyndni í stíl.

Lög