Breiðholt
Texti: Valgarður Guðjónsson
Helst að hafa sama stað og helst á sama stað
og jafnvel aldarfjórðung fast.
Engir fjötrar, nokkrir töfrar og svo skipta máli orð
og jafnvel meira lofuð orð.
Enda margoft verið ort og sagt og skrifað
hvað það fellur vel að sitja hlið við hlið.
Ekki er verra nálægð steina og nálægð stakra jurta
dregin í dálka og dilka á víxl.
Meira en stakar minningar og meira en blek á blaði
og meira virði en stanslaust flakk.
Vissulega situr fast í næmum huga en
líkar stöðuvatni en nokkurri á.