En hvernig væri?
Texti: Valgarður Guðjónsson
Datt inn á netspjall þar sem allra grasa kenndi
á ýmsum kenningum og skýringum og leynd.
Þar voru hugmyndir um alls slags speki og gáfur
en helst til vafasamt og mótsagnakennt rugl.
Ég held ég geti heldur betur gert svo miklu, miklu betur
svo miklu flóknara og frumlegra en þar.
Jörðin er blað - nei, innhverft ljós
Hvert mannkyn er maur - en fuglar klór
Tunglið er gat - og stjörnur skór
Hvert sandkorn er bók - nei, bók er sól
Tíminn flýgur í hring - nei, bakkar beint
Draumar á annarri rás - nei, misheppnuð klipp
Tónlist er haf - nei, hver heyrir sitt.
Að mestu birtist sama staglið aftur, aftur
og sorglegt tuð en ekkert ímyndunarafl.
Missa af augljósustu mótsögnum og götum
en finna staðfestingu í hvers kyns dylgju og sök
sem hlýtur augljóslega að liggja nokkuð staðfest
þó talsvert langsótt sé að tengja tvo og tvo.