Í hnotskurn

Lag: Helgi Briem, Valgarður Guðjónsson
Texti: Valgarður Guðjónsson

Ef ég mæla mætti
með að þér teygið öl
nokkru hægar að hætti
þess sem heyrast vill og skilgreina kvöl.

Þér lýstuð vel og lengi
lofi á guðlegri blók
en talsvert lítið tengi
það við texta úr yðar helgustu bók.

Við skiljum vel
þann vanda í skel
af hnetu að hrópa út trú
á hégómafullt og sjálfhverft hjú.

Og aumt það ok
ofan í kok
að troða á öllum yðar trú
á tryllt, ímyndað hjú.

Eins ég skal nú skrifta
að ég skil helst til fátt
um hver má hverju rifta
og hvaða boðskap má vart auglýsa hátt.

Ég hefði haldið reyndar
að heilagt uppgjör hvers
leiddi til að leyndar-
dómur ljóssins félli á endanlegt vers.

Því allt að einu mætti
annað hvert eitt rit
taka og túlka alla þætti
á trúarlega fullvissu og vit.

Að þræða stíga þröngu
þá sem heimta smátt.
Því mun á réttu og röngu
má þó reikna á öllu vitrænni hátt

Lög