Texti: Valgarður Guðjónsson
Hvort sem einhver er hann, hún, hán, hé eða hín
Hvort sem þér finnst þetta eitthvað skrýtið eða nýstárleg kyn
undarlegt, erfitt að venjast, óþjált eða stirt
þetta er val sem þér kemur ekki nokkuð við.
Hvort sem einhver hefur áhuga á öðru en þú.
Hvort sem sama kyn, mörg kyn eða ekkert sem einhver vill.
Meðan samþykkið er til staðar og enginn neyðist til neins
þér kemur þetta nákvæmlega ekki nokkuð við.
Ef það truflar þig að litir tákni og merki regnboga eða trans.
Ef truflar þig að það þurfi enn að berjast, fagna og minna á einfalt en satt.
Ef þér að leiðist að einhver fagni áfanga eða takist á við bakslag.
Mundu að þér kemur þetta samt ekkert við.
Hvað sem þú heldur, hvað sem þú vilt og hvað svo sem þér yfirleitt finnst
Hvað sem er vani og hvað sem var viðmið og hvað sem þú ólst kannski upp við.
Hvað sem var meitlað í minnissteina, hvað sem var haft fyrir satt.
Mundu að þér kemur þetta nefnilega ekki nokkuð við
.. andskotann ekkert við.
(Nóg er nóg)
Því nóg, er stundum nóg
og stundum dimmir yfir aftur eftir ljós.
Og nóg er meira en nóg
ég veit það birtir yfir aftur eftir nótt.
Hins vegar kemur mér það við ef þú hatast við fólk.
Ef þú dreifir tómu rugli, lygum, falsi og/eða róg.
Ef þú hamrar á rangfærslum, óhróðri og þvælu hvers dómsdags.
Geltandi eins og geltur rakki mér kemur það við.
Hvað sem pakkið segir sem vill stýra því hvað öðrum finnst.
Hvað sem það staglast, hvað sem það tuddast, hvað sem þau hamast út um allt.
Hvað sem það vísar í gamlar skruddur, um hvað sé gott og gilt.
Mundu að mér kemur það heldur betur við.
Því í grunni eru þetta fáfræði- og fordómahljóð.
Heimska, hugsunarleysi, skammsýnin sljó,
Stundum sett fram til að þykjast vera í góðri "trú".
samt kemur mér það heldur betur við.
Enda þótt mannvonska og hatur séu matreidd að forni lyst.
Og þó svo að þvælunni sé pakkað inn í alls kyns list.
Þó svo að fylgið safnist saman á miðlum misvitra í hóp
á meðan hatrið heldur áfram
kemur mér heldur það heldur betur við.
.. ég svara, ég loka - því mér kemur þetta við.